Páll og Rósa さんのプロフィールPáll og Rósaフォトブログリストその他 ![]() | ヘルプ |
|
Páll og Rósa5月13日 Maí 2008, lokaverkefni.Jæja þá erum við búin að uppfæra forritið fyrir vefinn, vonandi koma fleiri myndir inn með reglulegu millibili og það er líka möguleiki að setja inn video. Annars er allt gott af okkur að frétta, verkefnavinna í fullum gangi. Einmuna blíða alla daga sem gerir mér svolítið erfitt fyrir að halda einbeitningu til lesturs. Börnin í leikskólanum eftir verkfall, en það er möguleiki að það verði annað verkfall þann 18. maí....vonandi verður ekkert úr því. 5月19日 Smávegis héðan frá okkur í Danmörku.Komið þið nú öll sæl og blessuð. Setti inn nokkrar myndir fra okkur. Þar á meðal er að finna frá ferð okkar hjóna til Kaupmannahafnar í tilefni af fertugsafmæli Rósu. Við dvöldum á Copenhagen Plaza sem er mjög flott hótel, gamalt með langa sögu þekktra dvalargesta. Herbergin mjög góð. Maður fór nokkurn veginn aftur í tímann. Fórum út að borða á Sct. Gerthruds Kloster, sem er líka mjög gamalt. Þegar við komum þangað hélt ég að það væri ekki nokkur veitingagestur þar. Pöntuðum okkur matinn í bókastofunni, ég pantaði kálf og Rósa perluhænu, og mjög gott vín með. Eftir smástund vorum við leidd niður í vínkjallara og þar var setið við hvert borð, ég varð mjög hissa að sjá allan þennan fjölda. Þetta var mjög velheppnuð afmælisferð. Börnin voru í pössun hjá Helga og Addý og gekk það mjög vel, voru fyrst með eitthvert vesen þegar við komum að sækja þau.
Annars gengur allt vel hjá okkur, prófin að byrja og verkefnaskil á næstu grösum. Börnin dafna og hafa það gott. En við hlökkum mikið til að koma til baka til gamla góða Íslands til fjölskyldu og vina. 3月8日 Video myndirHæ öll sömul,
Setti inn video sem ég tók í dag af krökkunum. slóðin er þessi
Vonandi ég að setji fleiri myndir inn á næstunni.
Kveðja frá Danmörku. 10月19日 Efterår (haust) í Danmörku.Nú eru komnar nokkrar myndir í vefinn. Skólin byrjaður og öll fjölskyldan komin á fullt í daglegu amstri. Verðum í fríi í einn dag frá skólanum og erum að vandræðast hvað við eigum að gera skemmtilegt, Lególand eða lestarferð með gamalli lest í Nyborg eða Naturrama í Svendborg. Vorum að skila af okkur verkefnum í dag (úff gott að það sé búið) Svo taka prófin við í Nóvember og við byrjum í praktík á Háskólasjúkrahúsinu í Óðinsvéum skammstafað OUH. Komum heim um jólin sem verður alveg kærkomin tilbreyting, okkur hlakkar mikið til. Svanhildur Gígja á afmæli núna næsta sunnudag og hlakkar mikið til. Það er mikið fjör hér í hverfinu hjá börnum, Kristján Hermann var nú að skjótast inn til að ná í sverð í einhvern bardaga, fæst varla inn nú orðið eftir að Gabríel og Daníel flutt hér við hliðna á okkur.
Læt þetta duga nú, vonandi líður ekki of langur tími þar til að ég skrifa næst.
3月21日 Skemmtilegar myndirKristján og Svanhildur komust í myndavélina einn morguninn og voru að prófa sig áfram, með þetta spennandi tæki. Einhvern vegin tókst Kristjáni að kveikja á vélinni og byrjaði að smella af. Þau hafa greinilega skemmt sér mjög vel prakkararnir. Einnig eru nokkarar myndir frá bolludeginum og öskudeginum. Þau voru bæði ljón og skemmtu sér konunglega. Fórum einnig í fjöruferð, þar sem Svanhildur varð dálítið smeyk við öldurnar, var greinilega búin að gleyma því þegar hún fór í Skarðvíkina með afa sínum, þar sem voru miklu stærri öldur. Systkinin fengu líka Nemó-náttfötu frá Dóru og Sverri, sem voru í NY. Vöktu náttfötin mikla lukku. 3月3日 Í byrjun mars.Nú er kominn tími til að skrifa eitthvað á netið, maður er búinn að var allt of latur við þetta. Skólinn er byrjaður á fullum krafti og ætlar þessi önn að vera mun erfiðari en sú fyrri. Við er strax byrjuð að undirbúa okkur fyrir prófin í vor. Skólinn er fluttur í nýtt húsnæði og aðstaðan öll hin besta. Mjög rúmt um okkur og frábær lærdómsaðstaða við bókasafnið, sem mjög stórt. það er meira að segja líkamsræktarsalur í skólanum, þannig að það er engin ástæða til að vera í lélegu formi. Krökkunum líður mjög vel og gengur vel í leikskólanum. Svanhildur er byrjuð að tala dönsku og gengur bara vel. Núna segir hún alltaf "far" og "mor" þegar hún vil tala dönsku hér heima og svo byrjar hún, þetta gengur nú stundum svo langt að ég verð að lesa bækurnar og íslensku og dönsku. Henni finnst þetta vera mikið sport. Í dag var "fastelavn" (öskudagurinn) í leikskólanum þeirra og fóru þau klædd sem ljón bæði tvö, þetta fannst þeim æglega skemmtilegt. Við fórum í heimsókn til Svíðþjóðar 18-19. febrúar og sóttum heim Hjört og Sigríði og dætur þeirra þrjár. Það var frábært að hitta gamla vini hér í útlöndum. Brynjar Þór kom í heimsókan í janúar og gisti hjá okkur eina nótt. Hann og fjölskyldan flytja hingað út í ágúst og hefur hann nám í vélfræði. Það er verður gaman að fá þau hingað út. Svo erum við alltaf í sambandi við Helga og Addý og börn sem er frábært, gott að hafa góða vini í nágrenninu. Mamma og pabbi (Hemmi og Sanný) koma svo út um páskana, okkur er nú þegar farið að fara að hlakka til. 1月11日 Anatomy prófið yfirstaðið.Sæl og blessuð öllsömul og gleðilegt ár.
Nú erum við búin að taka það próf sem er talið það erfiðasta í skólanum ANATOMY......
Og það gekk svona líka ljómandi vel. Rósa varð hæst fékk 11. Einkunnaskalinn 00. upp í 13, ekki gefið 12. Þannig að árangur hennar er frábær. Ég er einnig mjög ánægður og fékk þriðju hæstu einkunn sem gefinn var nú, með 9. 6 féllu og þurfa taka upptökupróf.
Við erum búin að lesa eins og hestar síðan fyrir jól. Þannig að þetta er búið að skila sér......við erum svo fegin. Prófið gekk þannig fyrir sig að við erum tekin inn eitt og eitt, drögum spurningu sem með aðalspurningu og aukaspurningu. Rósa fékk spinalnerve (taugakerfið) og ext. og flexor vöðvana (biceps brachialis og triceps brachialis)og fleirri vöðva og ég fékk visfingurinn, átti að lýsa vövum og liðum. Einnig sem aukaspurningu fékk nervus obturatorius Svo fengum við 30 min til undirbúnings með líki. Svo fer maður aftur inn og er með munnlegt framleggese, ó já prófið er munnlegt. en þetta gekk mjög vel og fyrir það erum þakklát.
|
|
||||||
|
|